Gettó að hætti Hitlers?

Halló heimur!

 Í fréttum í dag kemur fram að Egyptar hafi  lokað landamærum sínum vi Gaza svæðið.  Ég skrifaði um daginn um erkibrjálæðinginn Hitler ofsótti skipulega gyðinga í seinni heimsstyrjöldinni.  Hann ofsótti og drap líka ýmsa aðra en gyðinga en látum það liggja milli hluta í bili.

Hvaða munur ætli sé á því að loka gyðinga inni í gettóum og loka palestínumenn inni í gettóum.  Girta svæðið á Gazaströndinni, sem ísraelar girtu af, er í raun ekkert annað en gettó að hætti Hitlers.  Hafið í huga að Ísraelsríki er á landi sem var tekið af palestínumönnum til að búa til griðastað fyrir fórnarlömb Hitlers og co.

 Miklu meira síðar..


Herðaniðurklofningur

Halló heimur! 

 “Öxin klýfur austfirðinga í herðar niður” er fyrirsögn sem sjá má í Morgunblaðinu föstudaginn 1. febrúar anno domini 2008.

Þar er fjallað um þá fáheyrðu aðgerð að byggja einn fjallveginn enn á austurlandi í meira enn 500 metra hæð, 530 metrum reyndar. Það er alveg ótrúlegt að menn skuli í alvöru vera að spá í að henda 1.500.000.000 króna í þetta sem er 18km. vegur. Svo þegar kominn er heilsársvegur yfir þarf að halda honum opnum, bera sand og/eða salt í brekkur osfrv. Að auki á að nota fé í þetta sem til er komið vegna mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar vegna niðurskurðar þorskkvóta. Það er að mínu viti svolítið hjákátlegt að tala um það þar sem þeir sem missa fyrst vinnuna vegna niðurskurðarins eru að langmestu leiti konur sem hafa jafnvel unnið alla starfsævina við færiböndin í fiskiðjuverum landsins. Ég sé það einhvernvegin ekki fyrir mér að þær fjölmenni í vegagerð. Sé þetta hinsvegar rangt hjá mér og allar konurnar fari að keyra trukka, jarðýtur og fleiri tæki og tól sem nýtast í vegagerð, þá er það vel.

Ég get að nokkru leyti skilið sjónarmið Djúpavogsbúa sem eiga langt í allar áttir, 100km suður til Hafnar, rúma 60km til Breiðdalsvíkur og álíka langt til Egilsstaða um Öxi.  Sérstaklega mtt. sameiningarhugmynda Djúpavogs og Héraðs.  Þó má segja að sniðugra gæti verið að Breiðdalur og Djúpivogur sameinist Fjarðabyggð þegar horft er til þeirra hugmynda sem settar eru fram hér á eftir.

Ég tel það lýsi mikilli skammsýni að gera Axarveg, einfaldlega vegna þess að það eru vinnubrögð fortíðarinnar.  Í greininni undir fyrirsögn þeirri sem fyrr er nefnd er vitnað í bæjarfulltrúa Fjarðabyggðar, sem virðast líka á því að þetta sé óráð. Líka er vitnað í bæjarfulltrúa Fljótsdalshéraðs sem telur þetta hið besta mál útfrá byggðasjónarmiði. Svo verður að telja jákvætt að Axarvegur myndi stytta hringveginn um 60 km. Þessi sjónarmið eiga rétt á sér, það má líka hugsa sér að þegar búið er leggja Djúpavog í eyði þá sé Axarvegur góð leið að fara með íbúana sem gætu kannski flestir hugsað sér að flytja í Hérað, án þess þó að ég ætli nokkuð að fullyrða um búsetuvilja þeirra.

Það sem þarf að gera í samgöngumálum hér austanlands er að mínu viti eftirfarandi:

Bora göng undir Hamarsfjörð.

Bora göng undir Lónsheiði, leggja þar með af veginn um Hvalsnes- og Þvottárskriður.

Bora göng undir Berufjörð utanverðan.

Bora göng milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar.

Bora göng milli Stöðvar- og Fáskrúðsfjarðar.

Bora göng milli Reyðar- og Eskifjarðar.

Bora göng milli Eski- og Norðfjarðar (þegar á áætlun).

Bora göng milli Norð- og Mjóafjarðar.

Bora göng milli Mjóa- og Seyðisfjarðar.

Bora göng milli Mjóafjarðar og Fljótsdalshéraðs.

Bora göng milli Vopnafjarðar og Héraðs.

 

Þetta eru vissulega háleitar hugmyndir og mikil óskhyggja að þetta verði nokkurn tíma að veruleika. Þó er þetta það eina sem getur virkilega orðið þess að sameina miðausturland og firðina í eina heild, eitt atvinnusvæði. Lítum nú á hvað við myndum fá í staðinn fyrir öll þessi göng.

Hamarsfjarðargöng myndu leggja af veginn um fjörðinn sem er hæðóttur og krókóttur í vondu landslagi, þó unnið hafi verið að endurbótum á honum sl. sumar.

Lónsheiðargöng myndu, eins og fyrr er sagt, leggja af veginn um Hvalsnes- og Þvottárskriður, sem þykir dýr í viðhaldi, þar myndu því sparast peningar á móti.

Berufjarðargöng utarlega við fjörðinn myndu spara viðhald á leiðinlegum vegi um Berufjörð og stytta hringveginn um tugi kílómetra og losa okkur við Axarveg. Þar með sparast peningar á móti, nb. snjómokstur á Axarvegi sparast líka

Göng milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar myndu leggja af veginn með ströndinni sem er leiðinlegur og undir bröttum fjallshlíðum að ekki sé minnst á veginn um Breiðdalsheiði. Mun minni þörf yrði fyrir viðhald á veginum með ströndinni, og engin þörf á að halda Breiðdalsheiði opinni á veturna sem sparar peninga á móti.

Göng milli Stöðvar- og Fáskrúðsfjarðar myndu leggja af veginn með ströndinni sem er ákaflega leiðinlegur, hæðóttur og krókóttur. Þar með þyrfti sá vegur mun minna viðhald sem sparaði aftur pening á móti.

Göng milli Reyðar- og Eskifjarðar myndu leggja af veginn um Hólmaháls. Þar reyndar í bígerð að færa veginn frá núverandi vegarstæði niður um “einn stall”, sem samt nægir ekki til að gera verulegar bætur á veginum, sem auk þess mun skerða friðlandið í Hólmanesi. Færsla vegarins í göng myndi stórauka gildi svæðisins sem útivistarsvæðis og mætti gera þar mikla túristaparadís til upplyftingar ferðaþjónustu á svæðinu.

Nýju göngin milli Eski- og Norðfjarðar þarf ekki að tíunda, þar eru allir sammála.

Göngin sem myndu tengja saman Norðfjörð, Mjóafjörð, Seyðisfjörð og Hérað væru sennilega hagkvæmust af öllum þeim kostum sem hér eru tíundaðir, nema ef vera skyldu Lónsheiðargöng. Þessi göng myndu leggja af þörfina fyrir mikið viðhald snjómokstur ofl. á Fjarðarheiði, Mjóafjarðarheiði (reyndar ekki mokuð oft á vetri) og Fagradal.

Göng milli Vopnafjarðar og Héraðs myndu trúlega ekki spara eins mikla peninga í viðhaldi annarra vega eins og önnur göng sem tíunduð eru hér að framan. Nú þegar eru uppi áform um byggingu nýs vegar frá hringveginum til Vopnafjarðar og verður þeirri framkvæmd ekki sleppt hvað sem menn gera í gangamálum, enda vegur sá sem nú er fyrir neðan allar hellur.

Maður gæti séð fyrir sér að einhver hristi höfuðið þegar minnst er á göng undir Berufjörð, þau yrðu erfið og dýr og fleira má örugglega finna þeirri hugmynd til foráttu. Ég ætla hins vegar að benda á þá staðreynd að það gerðu menn líka þegar fyrst var talað um göng undir Hvalfjörð. Einn ágætur maður sagði meira að segja að "enginn myndi far um þessi helv... göng".  Annað hefur hinsvegar komið á daginn. Nú anna Hvalfjarðargöngin ekki lengur umferðinni og farið er að tala um nauðsyn borunar annarra ganga samhliða þeim sem fyrir eru.

Tækni við gangagerð fleygir stöðugt fram, þekking manna á gangagerð hefur aukist mikið og verð lækkað. Hér í eina tíð gilti þumalputtareglan að göng kostuðu “milljón á metrann”, en það mun hafa lækkað nokkuð. Hér er vissulega um gríðarlega peninga að ræða og þeir verða ekki “týndir upp af götunni”. Einhver þessara ganga mætti fjármagna að einhverju leyti með veggjaldi td. Berufjarðargöng og Hamarsfjarðargöng, en önnur síður. Taka verður með í reikninginn þann kostnað sem sparast hjá vegfarendum við styttingu leiða, minni útblástursmengun, svo er jú dýrara að aka margar brattar heiðar í stað vega á jafnsléttu.

Menn þurfa að hætta að láta skammtímahagsmuni ráða feriðinni og setja markið hátt og sjá heildarmyndina.  Það er ljóst að forgangsraða þyrfti þessari gangagerð vandlega og menn þyrftu allir að standa þétt saman um málið.  Vissulega yrðu sumir að bíða lengur en aðrir en það er nú alltaf þannig hvort sem er að allir geta ekki fengið allt strax.

Miklu meira síðar.


Fyrrenvarði og raunir hans.

Vekjaraklukkudruslan glumdi af öllum lífs og sálarkrafti, Fyrrenvarði var vaknaður og kominn á ról, leit út um gluggann, slydda stormur og él.  Fyrrenvarði var kominn fram að eldhúsborði og farinn að skófla í sig hafragrautnum frá í fyrradag, þeim sama og var líka í gær og myndi verða á morgun.

Fyrrenvarði var kominn á skrifstofuna og farinn að tala við sama fólkið og vanalega, gera sama og vanalega.  Fyrrenvarði var kominn á tima fram í kaffi, slokaði úr kaffibollanum, sagð' eitthvað samhengislaust við stelpurnar sem voru líka í kaffi að tala um vandamál heimsins, karlmenn.  Fyrrenvarði áttaði sig á því að vandamál heimsins voru konur, sem almennt eru haldnar þeirri fyrru að vandamál heimsins væru karlmenn.  Fyrrenvarði var aftur kominn á skrifstofuna, aftur farin að tala í símann við, ja hvað haldið  obbbobbbobbbobbbobbbobb hvað haldið þið, sama fólkið.  Fyrrenvarði sá að þetta var nú bariggi hægt, alltaf sama rútínan, skrifstofa, sími, kaffi, sími, skrifstofa.

Fyrrenvarði var kominn heim, lesa blöðin, sem komu nánast öll óumbeðið inn um bréfalúgun svo klofa varð yfir hauginn, skyld' ekkert að af issu fólki sem skrifar allt'etta bull í öll'essi blöð ekki hafa neitt betra að gera?, eða kannski bara ekki fá neitt betr'að gera?  Fyrrenvarði áttaði sig á því að einhversstaðar verða vondir að vera og eitthvað verða þeir að gera.  Fyrrenvarði kveikti á sjónvarpinu, slökkt'attur, end'ekkert að sjá, frekar en fyrri daginn.

Fyrrenvarði stillti vekjaraklukkuna og fór að sofa.

 Vekjaraklukkudruslan glumdi af öllum lífs.................

 


Snjór

Halló heimur!

Það snjóar hér fyrir austan, og skefur alveg fjandann ráðalausan.  Loksins kom snjóveður af viti, ég segi af viti því snjórinn fýkur allur eitthvað út í buskann og veldur ekki teljandi vandræðum innanbæjar.  Hinsvegar hefur fólk verið að lenda í vandræðum á vegunum allt í kringum okkur, vonandi komast allir óskaddaðir frá því.  Það er stundum gaman að búa úti á landi þar sem maður getur labbað í vinnuna ef ófærð hamlar akstri, ekki svo að skilja að það hafi gerst í dag hjá mér.   Mann einhvern veginn langar ekkert í kaosið sem alltaf verður í Reykjavík við þessar aðstæður, það er ekki neinu eða neinum sérstaklega að kenna, umferðin er bara svo mikil, þe. bílarnir svo margir.  Svo þarf ekki nema einn bíll að spóla smávegis og þá er allt fast. 

Miklu meira síðar...


Merkisdagur?

Halló heimur!

Í dag er merkisdagur!

Þennan dag fyrir einhverjum bunka af árum var blessaður karlinn hann Adólf Hitler gerður að kanslara Þýskalands.  Það verður, að mínu viti, að teljast Þýskalands stærsta óhapp síðustu aldar.  Þvílíkur erkibrjálæðingur sem hann var. 

Ég var á ferðinni í dag með útvarpið á í bílnum, og var minntur þrisvar á þetta atriði mannskynssögunnar þessa klukkutíma sem ég sat í bílnum.  Það varð til þess að ég velti fyrir mér hvort væri merkilegra í sögunni, það góða, eða það vonda.  Í dag er líka dagurinn sem Gandhi, hinn mikli hugsuður, var veginn.  Mér fannst það einhvernveginn ekki fara eins hátt og þetta með Hitler.  Reyndar sá ég ekki neinar myndir af Hitler í sjónvarpsfréttum, en þar var Ghandi hinsvegar.  Maður sá barnabarn hans bugta sig og beygja, væntanlega í virðingarskyni, fyrir framan öskuker sem síðan var tæmt í hafið undan ströndum Indlands.  Það mun siður hindúa að gera það við ösku þeirra látnu, annars var ösku Ghandis skipt í nokkrar krukkur sem var dreift um Indland, merkilegt miðað við siðinn með hafið.  

Ég get ekki gert að því að hugsa til þeirra milljóna manna sem létu lífið í útrímingarbúðun nasista í seinna stríði, og náttúrulega líka þeirra sem tókst einhvernveginn að lifa þetta helvíti á jörðu af.  Mér finnst það eiginlega með ólíkindum að það skuli hafa átt sér stað, að lifa þvílíkt af.  Kannski hefur það verið óendanlega sterkur lífsvilji og í raun uppreisn gegn kvalaranum, sko ég lifði, þú féllst fyrir eigin hendi.  Eitt er víst að við sem byggjum heimsþorpið megum aldrei gleyma þessum atburðum og verðum að standa saman svo þetta endurtaki sig ekki.

 Miklu meira síðar...


Stóra samantektarbloggið....

Halló heimur!

Ég ætla að setja saman svona samantektarblaður um það sem undanfarið hefur gerst í heiminum og valdið hefur mér heilabrotum, stórum og smáum.

Ég, eða réttara sagt við hjónin, skruppum til Akureyrar í fyrrakvöld og komum heim í gær, svosem ekkert merkilegt við það, utan að meðan við vorum í túrnum, kom rokkarinn Tommy Lee til Egilsstaða.  Auðvitað hefði hann ekki gert það nema vegna ófærðar í Keflavik fyrir bæði flugtæki og ökutæki.  Ég verð nú að segja að það var þó nokkur heppni að ég missti að þessum erkivitleysingi og slapp við að hitta hann, svosem ekkert víst að ég hefði gert það þótt ég hefði verið heima, Egilsstaðir eru jú meira en barasta flugvöllurinn.

Svo var þetta með dauða skákmeistarann, Fischer, sem eins og margir aðrir, sérstaklega karlkyns íþróttamenn, fékk ríkisborgararétt í hvelli.  Þetta er nú annars alveg furðulegt með þessi rískisfangsmál en það er efni í annan pistil eitt og sér, meira um það síðar.  Þeirri hugmynd var kastað fram, kannski í gríni, að hola dauðum kallinum niður í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum.  Ég spyr nú bara: Hvað er eiginlega að fólki?  Setja þennan, örugglega annars ágæta mann, niður í þjóðargrafreit íslendinga, ekki nema það þó.  Aflóga bandaríkjamann, sem hans eigin þjóð vill ekki einu sinni neitt með hafa.  Mín skoðun er sú að sá sem sett þetta fram, hvort sem var í gamni eða alvöru, eigi að skammast sín.  Í þjóðargrafreit íslending eiga að fara mestu synir og dætur Íslands, og engir aðrir.  Skákmeistarinn, þó merkilegur hafi verið, var ekki sonur Ísland.

Svo er það Reykvísk pólítík, það er auðvitað að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um það, þó það sé gert.  Það sem mér finnst ákaflega skemmtilegt, er að þegar Dagur B. Eggertsson er settu út af sakramentinu, talar hann um að nú eigi reykvíkingar að kjósa, það var hinsvegar ekki upp á teningnum þegar hann og Björn I. Hrafnsson léku sama leikinn fyrir hundraðogeitthvaðdögum síðan.  Það kann að vera að stuðningur við þá félagana hafi verið einhverju meiri en við þá sem nú ráða ríkjum, og þó... 

Miklu meira síðar...


Blogg byrjar.

Halló heimur!!

 Þetta er alveg frábært upphaf á fyrsta bloggi, hversu oft hefur maður ekki byrjað fyrsta forritsbútinn á þessum orðum.  Það er nú svosem annað mál að ég er svakalega gamaldags nútímamaður að ég er núna fyrst að byrja að blogga, ég sem hef alltaf haft gaman af að skrifa allskonar vitleysu þegar sá gállin er á mér.

Það sem sparkað mér af stað var eiginlega "fyrrum" stamstarfsmaður sem tók sig til og flutti til suður Ameríku, og hefur verið blogga.  Fannst þetta svo skemmtilegt að ég ákvað að láta reyna á þetta.


« Fyrri síða

Um bloggið

Guðmundur Guðmundsson

Höfundur

Guðmundur Guðmundsson
Guðmundur Guðmundsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_2323
  • Jökla við Brú
  • Brúin við Brú
  • Sturta
  • Laugin á Laugavöllum

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband